Já! Ég, bróðir minn, mamma og pabbi sátum og vorum að horfa og við giskuðum á að Olsen-bræður kæmust í topp 5… en svo komust þeir EKKI! Ég bara gapti. En sennilega kusu þeir sem þekkja engin eldri Eurovision lög My Number One og Everyway that I Can.
Hver vissi ekki að Abba myndi vinna? Það var svolítið augljóst fannst mér. Og í sambandi við kynnana… kallinn (hvað sem hann heitir nú) þá er hann einhver mesti snillingur sem ég veit um! Hann er ekki svona gerv/filegur með asnalega brandara sem enginn hlær af nema af samúð… hann ER fyndinn! Pabbi sagði að hann væri alveg út úr heiminum. Mér fannst þetta í heildina alveg ágætt, nema þegar það var verið að dansa við Abba… það passaði ekki inn í. Og mér finnst MJÖG skrítið að það skuli ekki...
Jahérnahér. Svona nýir símar endast sama og ekkert. Mamma mín á alveg eldgamlan síma sem tekur aðeins 10 sms en hann hefur aldrei bilað. Ég held að hún hafi í mesta lagi fengið nýtt batterí í hann, eða ekki einu sinni það! Svo eru vinkonur mínar alltaf að fá sér nýja síma því hinir eyðileggjast. (Eða þeim langar bara í annan!)
Já, skamm skamm! Hættu að baktala söguna þína, hún gæti farið í fýlu! Pældu í þessu, það er EKKI gott að hafa sinn eigin spuna á móti sér, hann fer að breyta plottinu allt í einu. T.d. gæti hann látið Dartaníu og Severus Snape verða ástfangin! Eða… það er kannski ekki svo vitlaus hugmynd… því kannski var Snape goth á sínum sokkabandsárum! Híhí. En allavega… ég gæti svo sem alltaf farið í gamlar greinar og fundið spunann þinn þar *múhahahha* Hinsvegar var ekkert að sögunni í heild þá, en...
Veistu, ég er farin að muna hvernig hún komst út úr Azkaban! Gaurinn sem var bróðir… Ollivanders… held ég… og svo fullt af sniðugum hlutum… híhí. Allavega, gangi þér bara frábærlega með spunann! Ég hlakka til að sjá meira!
Já, veistu… ég er sammála þér. Mér finnst bækurnar alveg rosalega góðar og myndir sem ýmsir teiknarar hafa gert… en ég hef engan minnsta áhuga á öllu dótinu sem hægt er að fá! (Nema það væri fjöðurstafur… mér finnst þeir töff! :þ) Já, og sástu þáttinn um Star Trek um daginn? ÞAÐ er brjálæði!!!
Þriðja bókin held ég. Persónurnar þar eru svo skemmtilegar (og ég held líka mjög mikið upp á Ræningjana) og svo fattar maður ekki allt fyrr en í endinn. Maður er viss um að Sirius sé vondi kallinn, hvert er Remus Lupin að fara… og svo Snape í fýlu! Það er nú bara alveg yndislegt! Það er nefnilega helvíti mikið að gerast þarna!
Lesa eins mikið og þú mögulega getur. Þótt það hjálpi þér ekki mikið við framburðinn þá færðu alveg ótrúlegan orðaforða. Ég eyddi mestöllu sumrinu í að lesa fullt af hlutum á ensku og hef ekkert lært í ensku á þessu ári. (Kennarinn er samt mjög góður). Og já, líka að horfa á myndir með enskum texta og svo geturðu sleppt textanum til að læra betur að heyra og skilja ensku.
Þetta er sniðug hugmynd, en áhugamálið yrði frekar óvirkt. Hinsvegar væri kannski hægt að sameina alla borð-leikina í eitt áhugamál, hafa svo nokkra korka um hvert og eitt, skák, billjard, tennis, spil og þannig hluti….
Ég kannast við nafnið… en ég held að þú sért að bulla þegar þú segir að það hafi ekki komið neinar nýjar greinar í heilt ár… t.d. var Tzipporah á fullu að senda inn síðustu kaflana í spunanum sínum á svona einni viku! Híhí. Það var gaman.
Ég held að það sé hægt að kaupa venjuleg gæludýr þarna. Nema…. æi, ég kíki bara í 3.bókina! *Hleypur inn í herbergi og reynir að finna eitthvað* Aha! Gott og vel… Harry sagði í þriðju bókinni að það væri “galdraskepnubúð” rétt hjá. Svo stendur að þau hafi farið inn í “Galdradýrabúðina”. En þetta er bara íslenska útgáfan, kannski stendur eitthvað annað í þeirri ensku….
64 kaflar! Hah! This Time Around er 69 kaflar :) En þar sem þetta endar á “endapunktinum” þá vil ég ekki lesa þetta… ég vil ekki lesa spuna sem enda sorlega!!! :'(
Ég bý nú hérna í krummaskuði á hjara veraldar (á pínulitlum stað á Íslandi) og vissi nú samt að hún ætti fleiri en eitt barn! Tja… gott og vel… ég hélt að hún ætti bara tvö…. en samt… :þ
Fyrra atriðið sem þú nefndir finnst mér yndislegt. Úff… ég hef ekki bókina hjá mér og hef ekki þorað að lesa hana aftur svo að ég man eiginlega ekki eftir neinum atriðum. Jú, bíddu við! Þegar Harry sagði við Snape “there is no need to call me sir” eða eitthvað álíka! Ég sprakk úr hlátri!
Núnúúúú! Damn… ég vissi að ég hefði átt að spyrja á Huga hvort einhver væri að fara í skólabúðir og væri notandi hérna!!! Ég efast um að við höfum hitt hvor aðra, ég var í einn sólarhring en fór svo heim út af veikindum.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..