Monotrim er mjög stöðugt, svo lengi sem því er haldið frá sólarljósi, svo það ætti að vera í góðu lagi (ég er ekki læknir, svör mín jafngilda ekki og koma ekki í stað heilbrigðisþjónustu) En endurteknar blöðrubólgur gefa tilefni til að þú farir til þvagfæralæknis og fáir greiningu og meðferð við því sem vandamáli, en ekki bara meðhöndlun hverju sinni. Svo er, eins og þú sjálfsagt veist, gott að drekka trönuberjasafa, þeas. ef þú eða náin fjölskylda eruð ekki með nýrnasteinasögu.