Ég persónulega er ekkert að væla yfir kærumálum kvenna því að ég veit að þær manneskjur sem misnota kerfið eru oftast mjög fáar og eru ekki bundnar við kvennfólk einungis. Árni Johnsen reyndi að misnota stöðu sína, Bush misnotar stöðu sína. Í raun eru mjög margir sem misnota stöðuna sína og þeir koma úr öllum geirum, kynþáttum og umhverfum. Þannig spurningin ætti kannski frekar að vera: Hvað er siðferði? Segjum svo að öll lög yrðu afnumin, myndu menn þá sökkva í hyldýpi glæpa og sora?...