Jamms, ég var í USA fyrir tveim vikum og verðið á kúlunum þar var vægast sagt hlægilegt. Meðalverð á kúlu var í kringum 1kr. Miðað við þetta verð og það sem maður hefur eytt í paintball í Kópavogi liggur við að maður gæti rölt í gegnum vellina með autofire á, þ.e.a.s ef byssurnar væru með slíkan fídus;) En svo sagði einn samstarfsfélagi minn að það væru víst háir tollar á þessum varningi, kynntist hann því þegar hann og nokkrir félagar hans reyndu að fá leyfi fyrir paintball velli 1993.