Það er víst K7T kubbasettið fyrir bæði Duron og T-Bird, það er dáldið óstöðugt, virkar ekki með íslenska W98 nema með patchi, IRQ conflictar ef meirihluti raufa eru uppteknar. Það er algengast að böggar komi upp þegar verið er að setja upp skjákort eða netkort. Þetta er nú kannski aðallega þegar verið er að púsla saman vél, þá getur maður lent í basli vegna fyrrgreindra bögga. En þegar allt smellur saman er T-Bird og Duron draumur í dós…