Mér fannst ég þurfa að koma þessu á framfæri við þig líka; Veistu, ég hef verið svo slöpp undanfarið að ég man ekki einu sinni eftir að hafa skrifað þetta. -.-' Ég virka rosalega mikil tík og ætla ekki að koma með neinar afsakanir varðandi það því kannski er ég tík, ég veit það ekki. Maður sér ekki sjálfan sig í gagnrýnu ljósi en mér veitti ekki af því af og til. Fyrirgefið innilega leiðindin í mér, ég ætlaði ekkert að vera með stæla… eða ég held allavegana ekki, sökum talsverðra veikinda...