Ertu kannski of ungur til að muna eftir Napster? Napster var fyrsta virkilega virkilega útbreidda p2p filesharing forritið. Lars Ulrich, Dr.Dre, Madonna og fleiri hjóluðu í þá fyrir að vera að dreifa tónlist frítt sem uppskar mikla fýlu meðal tölvunörda, sérstaklega út í Metallica bæði þar sem þeir voru minst “pop” af þeim sem voru í þessu og af því að Lars var hvað mest áberandi. Þessar teiknimyndir voru gerðar í kjölfarið til að gera grín að þessu fíaskói öllu saman.
Sammála því. Eins og útlendingarnir segja “you can't polish a turd”.. Ef magnarinn soundar ekki vel til að byrja með, þá er enginn effekt sem getur lagað það.
Húsið opnar 19:30, en það þýðir náttúrulega að við byrjum ekkert að spila fyrr en svona 20:00, eða jafnvel seinna, fer eftir því hve hratt fólk er að tínast inn.. Og þú mætir! Og hlustar á okkur spila, ekkert do-do inni á klósetti í þetta skiptið :Þ
Það er líka til gítar sem heitir Dean MLF, og kemur frá verksmiðju með Floyd Rose, mikið minna vesen en að vera að skipta sjálfur. Það hlýtur að vera einn MLF í svipuðum verðflokki og þessi ML sem þú varst að skoða (eða allavega nógu lítið dýrari til að það borgi sig frekar en að skipta sjálfur)..
Það vill svo skemmtilega til að ég á einn Gibson Explorer, og hinn gítarleikarinn í bandinu EX-400. Ég mæli frekar með Explorernum, en ég gæti náttúrulega verið svolítið hlutdrægur þar sem ég á hann.. hinn hljómar samt tussuvel í niðurtjúni (hann er með'ann í B) út af EMG 81 pickuppunum.
Þú ert nú örugglega fljótari að keyra út Keflavík til Hafnarfjarðar en þú ert úr Vesturbæ Reykavíkur.. Bætt við 23. nóvember 2006 - 16:52 *úr Keflavík, ekki “út..”
Söngvarinn okkar var reyndar að spá í að gera það, því það eru svo langir sólókaflar í lokin á tveimur fyrstu lögunum okkar að hann veit ekkert hvað hann á af sér að gera á meðan :P
Ég hef heyrt þetta áður.. og þykir nokkðu merkilegt þar sem þau eru bæði samin fyrir tíma hljómsvetiarinnar, annað af mér og hitt af gamla leadgítarleikaranum..
Það sem Vicarious sagði, þetta hefur ekkert með vírusa að gera, en ruslpóstsendendur eru hinsvegar með forrit sem leita að póstföngum til að senda á eftir @ merkjunum… ef þú ruglar eitthvað til póstfanginu svo mannshugurinn þurfi að gera eitthvað til að senda á þig þá sleppurðu við hellings ruslpóst..
Ágætis bönd inn á milli, en mér finnst ´hun full hörð.. þ.e.a.s. vantar bönd þar sem gítarleikararnir skrúfa aðeins niður í gaininu og söngvarinn syngur..
Það eru notendurnir sjálfir sem koma með umfjöllun inn á vefinn. Black- og deathmetalaðdáendur virðast vera í meirihluta hérna inni, eða þá að death- og blackmetalunnendur eru óragari við að tjá sig um músíkina sem þeir fíla.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..