Hérna fyrir sunnan, ef hljóðfærabúðirnar eiga þetta ekki, getur maður leitað til verslunar sem heitir Dynjandi, og sérhæfir sig í alls konar öryggisbúnaði (hjálmum, gleraugum, eyrnahlífum, fatnaði, you name it) .. ef það er einhver svoleiðis verslun þarna fyrir norðan er það besti staðurinn til að leita held ég. Svo eru margir sem nota hálfa gula apótekaratappa í hallæri, Skera þá einfaldlega í tvennt .. ekkert frábær lausn, en það skerðir tónsviðið minna en heill tappi, og verndar heyrnina...