Til að einfalda útreikninga þá miða ShopUSA sendingarkostnað við verð en ekki umfang, sem gerir það skiljanlega óhagstæðara að flytja dýra fyrirferðarlitla pakka með þeim. En þetta er náttúrulega spurning um hvað menn sætta sig við, annað hvort að borga óþarflega mikinn flutningskostnað, eða taka gítar í næsta (eða þarnæsta) gæðaflokki fyrir neðan á sama verði hér heima… Ég fékk, með hjálp, og þrátt fyrir verðlagningu, ShopUSA Gibson Explorer á lægra verði en Epiphone Explorer kostar hér...