Það er rosalega misjafnt eftir framleiðendum, og jafnvel framleiðslulínum sama framleiðanda, t.d. á ég nokkra svarta boli sem ég keypti í Hagkaup með Rugby merkinu, í medium, en síðan skaffaði vinnan mér svarta Rugby boli og þá passaði Large betur, og virtust eiginlega bara nákvæmlega jafn stórir og medium bolirnir sem ég hafði keypt úti í búð. Ég er 182cm og 92kg og á boli úr ýmsum áttum allt frá M upp í XL sem allir passa jafn vel..