Ég er þannig, er með Prodigy og Chemical Brothers og eitthvað fleira svona “vandaðra” techno á playlistanum mínum og skammast mín ekkert fyrir það þegar þessi fáu lög poppa upp.. Svo finnst mér helvíti gaman að hlusta á eitt og eitt lag með Scooter, því það er svo gaman að hlæja að því hvað þeir eru lélegir. Scooter stendur þétt við hlið sænsku metalsveitarinnar Vondur í “of silly” möppunni minni, þar sem ég geymi fyndin lög sem maður getur ekki hlustað á nema eitt og eitt í einu :P