Bull og vitleysa. Bruce var búinn að haga sér eins og hálfviti á öllum Ozzfest túrnum, dissandi hátíðina, hljóðkerfið, Ozzy sjálfan, Bandaríkin í heild sinni og bara búinn að vera leiðinlegur. Hann átti þetta skilið, helvítið á honum.
Það er hún Bobo, og hefur sungið með Rammstein síðan þeir gáfu út Sehnsucht. Hún stofnaði hljómsveit sem heitir Bobo in White Wooden Houses og hefur gefið út einhverjar plötur með þeim.
Ég hef einu sinni labbað í svefni. Ég fór úr rúminu mínu, útúr húsinu og lagðist í sandkassa sem er í garðinum bakvið húsið, vaknaði svo um 4 leytið, skíthræddur og ískalt í náttfötunum, hljóp að húsinu og barði á dyrnar, hágrenjandi. Ég var 4 ára.
Ekki það að ljósmyndin sé eitthvað móðgandi á einhvern hátt, en ég skil alveg að fyrirtæki á borð við Sony Ericson vilji ekki hafa ljósmynd á borð við þessa á vefsíðu sinni.
Ég er að renna í gegnum diskinn núna, keypti mér hann í vinnunni í dag. Er kominn á Stirb Nicht Vor Mir, og verð eiginlega að segja að þessa plata er að valda mér vonbrigðum. Reise, Reise var miklu betri.
Kjaftæði, Opeth er progressive death og ekkert annað. Þeir segja það meira að segja sjálfir. Það nægir að hlusta á þetta til að heyra að þetta er ekki bara progmetall.
Ef hann væri ekki sellout þá þyrfti hann að vinna aukavinnu í einhverju frystihúsi til að láta enda ná saman. Ef maður ætlar að lifa af tónlist á Íslandi, þá verður maður að selja sig.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..