Úff, alveg sammála þér. [Og í staðinn fyrir að nota shift til að gera stóra stafi er hægt að nota caps lock, alveg við hliðina á litla putta vinstri handar] Ég rekst of mikið á þetta á bloggsíðum krakka sem eru alveg upp í 16 ára og jafnvel eldri. Það er gjörsamlega óþolandi að reyna að lesa þessi blogg, sem eru venjulega ekki um neitt. Persónulega reyni ég að hafa bloggin mín sem snyrtilegust annars fengi ég grænar bólur við að lesa þau yfir :P