Canon EOS 300D, 350D, 400D og 450D eru í raun sama vélin, bara nýrri og endurbætt módel en þessar vélar eru allar svona byrjenda stafrænar SLR vélar. Næst fyrir ofan eru 50D, 40D, 30D, 20D og 10D (eins og með hundrað vélarnar er þetta sama lína bara nýrri módel, 10D elst og 50D nýjast) sem eru betri og eru næsta stig áður en þú ferð í fullframe vélar eins og 5D eða 1D. Ég er reyndar enginn sérfræðingur og þetta er trúlega kolrangt hjá mér.