Ég kom aðallega til að bera goðið augum, hann hefði getað spilað hvaða skít sem er, ég hefði verið sáttur. Ég eyddi samt meirihluta tónleikana fyrir miðjum sal, í þvögunni og jafn smávaxinn og ég er sá ég voða lítið og gat voða lítið notið mín, en síðan færði ég mig úr þvögunni aðeins aftar og skemmti mér konunglega. Auðvitað hefði verið gaman að heyra meira af gamla stöffinu. Langaði mikið að heyra Visions Of Johanna, SHB og eitthvað af Desire.