Það er svo auðvelt að þekkja þetta. Allavega hef ég ekki fallið fyrir þessu eftir fyrstu 2 skiptin eða svo. Ef ég sé eitthvað sem ég held að sé svona “shock” dæmi, þá lækka ég næstum alveg niður og fer að skoða eitthvað annað. Og viti menn! Hálfri mínútu síðar heyri ég eitthvað lágt bælt öskur koma úr hátölurunum, svo kíki ég á þetta og sé einhvern texta “hahahahahahahahahahahhahahahahahahahaha þarna brá þér ég er sniðugur ololoololololol!!!1”. Nei, þú ert ekki sniðugur, fíflið þitt!