Þetta sem þú sagðir, um að vísinin voru leiðrétt, er einmitt sönnun á því hvað vísindin eru góð. Þau leiðrétta sig nefninlega ef eitthvað reynist vera rangt. Ef einhver getur afsannað eitthvað í vísindum, þá þýðir það að vísindin hafa aukið þekkingu sína, ekki öfugt. Þetta með að líkaminn léttist er bara flökkusaga, þetta hefur verið prófað með almennilegum mælitækjum og það kom í ljós að líkaminn léttist hreinlega alls ekki neitt við dauða. Svoleiðis er það bara og þú verður að sætta þig við það.