Jamm, mér fannst líka pirrandi þegar ég fór um daginn á ROTK í Smárabíói, og alltaf öðru hverju þá hætti hljóðið í svo sem 0.02 sekúndur. Það var nóg til þess að mér fannst ekki nærri því eins gaman á myndinni og í fyrsta skiptið því alltaf þegar þetta gerðist þá hrökk ég einhvern vegin við (ekki alveg en kannski skilurðu hvað ég meina). Alltaf þegar þetta gerðist var eins og væri öskrað í eyrað á mér: <b>“ÞETTA ER KVIKMYND, EKKI NEITT SEM ER AÐ GERAST Í ALVÖRUNNI!”</b> Jájá, ég veit það...