Málið er bara að fórna hreinum sveini, fyrst guðirnir vilja hvorki hreina mey, né geit. Cuss þú getur kannski reddað einum svein fyrir okkur. Hver er svo þessi ág?
Ég fór líka til Danaveldis, á hróarskeldu meira að segja, en það eru engin fjöll þar svo að þetta er kannski soldið rangur vefur til að vera að monta sig á hhhhhmmmmmmmmm…
Nei hann er ekki fyrir ofan, amk ekki staurinn sem ég er að tala um, því að ég fór beint á hann, þegar ég var að hoppa úr lyftunni. Og þó svo að hann hefði verið langt í burtu þá hefði ég samt klesst á hann, ég er svo heppin alltaf á snjóbretti.
Jæja, þá er það komið á hreint, en svo að við snúum okkur nú aftur að umræðuefninu, þá held ég að ef þetta dryslope verður að veruleika þá mun kosta svo hell mikið inn á það að það væri sniðugara að eyða frekar peningunum til að fara einhvert sem er alvöru snjór.
Ok, ég skal segja ykkur eina sniðuga af mér: Ég var einu sinni í skálafelli og ætlaði að vera klikkað sniðug og hoppa úr stólnum á miðri leið (þar sem hann kemur næst jörðu), en ég var svo sein á mér þannig að ég flaug á lyftustaurinn og slammaði svo á jörðina. Það sem þið skuluð læra á þessari sögu, er að þið skuluð aldrei hika, því að þá gætuð þið farið verr útúr því. Ég fór nebbla heim með æðislega myndarlega og stóra kúlu á enninu.
Virkar þetta ekki alltaf þannig, þegar mann vantar eitthvað, þá finnur maður það hvergi, en svo þegar maður þarf það ekki lengur, þá er það út um allt Og man, uss! Ég veit að þetta er ein stór málvilla
Já og sarax mín, ekki fara að hoppa ofan af neinum húsþökum eða neitt soleis, þú verður nú að geta haldið þetta blessaða teboð og fyrst og fremst verðuru að geta komist í fjallið, en gangi þér annars vel
Hann manitou var í mr og er því stúdent í íslensku, og ég veit að þá fara stafsetningarvillur mest í taugarnar á manni, rétt eins og málvillur. Svo að við skulum öll hópast samman og tölum einsur vitlausur íslendskur og við getumur. Nei nei, við skulum ekki vera vond við aumingja man
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..