Ég hef nú alltaf fengið ágætis þjónustu hjá Týnda. Ég fór með brettið mitt, sem slasaðist alvarlega í bláfjöllum eftir fyrirsát steinanna, í Týnda og bað þau um að gera við það. Þau sögðu að ég gæti komið næsta dag að sækja það og að þetta myndi kosta mig um 4-5000 kr. Ég kom viku seinna og það var enn ekki tilbúið, og þau sögðu mér að koma á morgun. Ég gerði það og fékk brettið eins og nýtt, ókeypis. Ég viðurkenni það að ef það hefði verið einhver snjór, þá hefði ég orðið soldið pirruð, en...