Satt ég kláraði TonePort auglýsinguna og mundi svo eftir GuitarPortinu líka. Það má eyða TonePort auglýsingunni ef einhver hérna er admin þar sem það mál er leyst.
190 þúsund er mikill peningur en er alls ekki hátt verð sérstaklega ekki þegar þú kaupir Marshall JVM215C á 180 þúsund eða Fender Twin á 190 þúsund og þar er ekki hægt að líkja gæðunum við að mínu mati.
Yfir höfuð betri partar í USA en þú getur dottið niður á marga Mexíkanska sem eru betri en margir USA og öfugt, snýst aðalega um að finna gott hljóðfæri ekki hvar það er framleitt. T.d japanskir Strats framleiddir frá 1980-1990 eru suddalega góðir.
Já ég veit ég var bara að segja hvað þeir kosta í dag. Custom Les Paul fór yfir í Custom Shop fyrir nokkrum árum sem var ókostur að mínu mati, team built gítarar að mínu mati hafa ekki verið neitt betri þeir sem ég hef séð og eina sem gerðist var að það bættist við 1500$ við verðið sem var mjög sniðugt hjá Gibson því þeir eru að mjólka markaðinn eins og þeir geta sem sést best með nýja “all original” Zakk Wylde gítarnum. http://www.gibson.com/en-us/Lifestyle/Features/graveyard-disciple-819/
Já smá útur dúr en það er í fínu lagi mín vegna, hefur þú vigtað Standardinn ? Maður er svo forvitinn hehe… Chambered geta hljómað fínt og verið rosalega fínir en maður er bara gamall hundur og fastur í sínu…
Ég er ekki að fýla chambered Les Pauls, vill hafa þá þunga og massíva, finnst chambered svo léttir, einhvernveginn eins og dóta gítar, allaveganna vill ég hafa mína frekar þunga, það í mínum huga er Les Paul :)
Já skil vel að þú viljir ekki selja hann, ég er líka þannig með minn en vonandi hefur maður efni einhverntímann að kaupa sér annan. Læt Stratocastana duga í einhvern tíma. Les Paul Custom kostar nýr í dag 4 þúsund dollara, hafa hækkað rosalega í verði enda snilldar gripir.
Það er ekki kaupandi neitt nýtt í dag nema þá að komast út sjálfur og taka það heim, þar að segja ef maður kemst í gegnum tollinn. Ég kaupi ekki kóreskan Ibanez á 80-90 þúsund.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..