Skil ég þig rétt, sendirðu inn sögu sem þér finnst léleg til þess að fá aðra til að senda inn betri sögur? Þú vandaðir þig greinilega ekki mikið við þessa sögu og þá tekur því nú varla að gagnrýna. Þú lést ekki fara yfir hana, hættir alveg að nota greinamerki neðarlega í textanum. Ef þú sendir inn sögu sem þú ert sjálfur óánægður með, þá eru líkurnar ekki miklar að þú fáir jákvæða gagnrýni.