Þegar ég þarf að einbeita mér mikið þá treð ég þumalputtunum uppí eyrun, held hausnum uppi með höndunum og nudda svæðið milli augnabrúnanna :D Alveg fucked up, en hefur hingað til hjálpað mér mikið. T.d. þegar maður er í stærðfræðiprófum og þarf að muna formúlur :'(
Ég er sammála með Dire Straits. Iron Maiden, Nirvana, Metallica, Slayer finst mér hrikalega ofmetnar. Ekki að þetta séu léleg bönd. Finst þau bara aðeins of mikið hype-up
Kom mér ótrúlega á óvart hvað Daniel er góður bond. Hann hefur svo mikinn sjarma. Hann er ekki OF neitt og ekkert að reyna að vera meira en hann er. Passar frábærlega í þetta hlutverk. Sean Connery var náttúrulega bestur. En gömlu og nýju myndirnar eru auðvita eins og svart og hvítt.
Ég hef nú ekkert heyrt með þeim og er ekki mikill blackmetal maður en ég verð bara að segja DJÖFULL er þetta svalt nafn á bandi. Plús það að þeir eru helvíti vígalegir svona málaðir.
Tölvuleikir hafa einfaldlega ákveðna staðalýmind á sér. Sem er í raun fáránleg og röng. Það spila nánast allir tölvuleiki og hafa gaman af. Annars væri ekki svona mikið um þá. Sem dæmi þá eru tölvuleikir líka t.d. www.leikjanet.is og svipaðar síður. Það að lana er í raun félagsleg athöfn, svipað og að fara saman í bíó. Þannig að í raun ætti það ekki að vera svona “nördalegt”. Hvernig væri að fara þroskast aðeins og ekki dæma hlutina svona.
Sýndu bara að þú sért desperate í vinnur. Ef að manni langar að vinna þá nær maður því alltaf. Þú verður bara að vera geðveikt ítin og þannig lagað “pirrandi”. Verður að hringja og ýta á eftir þinni umsókn.
Hmm.. þetta lítur nú ágætlega út. Hinsvegar gæti ég trúað að þú þyrftir meira að borða þarna í hádeginu. T.d. kjúklingabringu, hrísgrjón og salat. Þú mættir einnig bæta við milli hádegis og kvöldmatar skyri og ávöxtum..
Ehh.. nei. Þú mátt rúnka þér eins mikið og þú villt. Hinsvegar er það staðreynd að maður þroskast andlega og líkamlega meira með aldrinum. Þetta er eitthvað sem mun gerast hjá þér, ekki örvænta(þá vona ég andlega hliðin fyrr).
STRÁKAR! farið varlega í lyftingarnar svona ungir… Beinin ykkar eru ekki tilbúin í svona þyngdir fyrr en fyrstalagi 17 ára. Passið ykkur að taka bara ekki of harkalega á því! Fáið líka leiðbeiningar frá einkaþjálfurum.
Held að það sé meira af liði en þú heldur að reykja þetta… Fólk heldur að þetta sé í “lagi” og réttlætir þetta með því að bera þetta saman við aðra vímugjafa. Hvort sem þetta er skaðlausara eða ekki eins hættulegt og sígarettur/áfengi/heroin… þá breytir það ekki þeirri staðreynd að þetta skemmir þig á einhvern hátt. Mér finst perónulega það frekar slæmt á sinn hátt, þar sem ég hef séð þetta hafa mest áhrif á heilann í fólki. Verður oft svolítið dofið og svona. Ég held að það sé ekkert á það...
Spurning að setja aldurstakmark á huga? Þetta er fáránlegt hér fyrir ofan. Persónulega finst mér að þeir notendur sem geri svona ættu að fá áminningu. Allavega, já þá er verð á flatbökum fáránlegt. En pældu líka í því að ef þær væru ódýrari væri þetta land svo ógeðslega spikað… Bætt við 30. október 2008 - 23:31 Mér finst þetta enganvegin við hæfi. Hér er fólk komið til að spjalla saman en ekki gera svona rugl.
Enter :P Fín grein hjá þér. Hefði þó viljað sjá gáfulegri titil af því að greinin er svo gáfuleg. Svo á maður aldrei að afsaka sig í uppafi greinar :) Annars fanst mér þetta rosalega gott: “krakkarnir“ högum okkur alveg eins og lítil þjóðog vel orðað. Margir góðir punktar. Vona að hugasamfélagið fái að sjá fleiri greinar eftir þig.
Mér finst nú netlögreglan hafa gert sitt ef að hún hefur hugsanlega eitthvað streymi barnakláms. Ég tala nú ekki um ef að hún hefur komið í veg fyrir dreifingu og að fólk eins og ég og þú (og jafnvel börnin okkar) þurfi ekki að horfa uppá þetta eða rekast á þetta. Hinsvegar veit ég bara til þess að einhverstaðar verða vondir að vera… það er bara þannig. Ekki hægt að setja bara “bann” og vona að allir munu fara eftir því. En ef þetta stoppar hugsanlega einhverja eða erfiða fólki í að komast í...
Nei, hann er/var ekki á móti internetiu. Hinsvegar vildi hann setja á svokallaða “internet-lögreglu” eins og er vel þekkt útí heimi. Svosem ágætis hugmynd útaf fyrir sig að losna við t.d. barnaklám…
Tja, við græðum lítið sem ekkert á álinu. En við græðum hinsvegar á rafmagninu sem við seljum í álið. Hver segir að við hefum svo ekki getað ger e-ð annað sem hefði skilað etv. meira í þjóðarbúið en þetta?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..