Coleman aftur í UFC (15 álit)
Jæja, þá er það orðið opinbert að Brock Lesnar og Mark “The Hammer” Coleman munu mætast í UFC 87 þann 9. ágúst í Minneapolis. Það verður gaman að sjá Colemann aftur í UFC (hefur ekki keppt í UFC síðan 1999 þá í UFC 18). Þá munu Kenny “Kenflo” Florian og Roger “El Matador” Huerta einnig mætast á cardinu en sigurvegarinn í þeim bardaga mun að öllum líkindum mæta BJ Penn eða Sean Sherk í titilbardaga í léttivigtinni.