Gleymt lykilorð
Nýskráning
Formúla 1

Formúla 1

5.343 eru með Formúla 1 sem áhugamál
13.362 stig
647 greinar
541 þræðir
68 tilkynningar
26 pistlar
354 myndir
452 kannanir
7.652 álit
Meira

Ofurhugar

Alert Alert 870 stig
Vala Vala 492 stig
IanAnderson IanAnderson 468 stig
atli atli 406 stig
Aiwa Aiwa 356 stig
sphinx sphinx 348 stig
maggap maggap 300 stig

Bíddu Halló ? :P (14 álit)

Bíddu Halló ? :P Skondið að koma svona inn í beygju :F

Michael Schumacher (6 álit)

Michael Schumacher Á árum áður :)

Michael Schumacher kvaddur (2 álit)

Michael Schumacher kvaddur Þýski ökumaðurinn Michael Schumacher veitti viðtöku sérstakri viðurkenningu á verðlaunaafhendingu FIA föstudaginn 8. des. Um er að ræða sérhannaðan gullpening, en hann fær fær Schumacher fyrir framlag sitt til íþróttarinnar. Voru það Bernie Ecclestone og Max Mosley sem afhentu verðlaunin.

Mika Hakkinen (3 álit)

Mika Hakkinen Já eflaust margir sem sakna hans. Og eflaust ófáir sem eiga eftir að missa áhugan eftir að Schumacher hætti líka.

Að mínu mati tveir allra mestu kappar sem hafa nokkurn tíman keppt í kappakstri.

Væri til í að sjá DTM mótaröðina en RÚV dettur það auðvitað ekki til hugar!

Schumacher fótboltakappi (13 álit)

Schumacher fótboltakappi Hérna sést Schumacher spila fótbolta en hann er mikill áhugamður um fótbolta og hann fer oft út með vinum sínum að spila.

Gamall Lotus bíll (3 álit)

Gamall Lotus bíll Hérna sést Mario Andetti frá Bandaríkjunum vera að keyra Lotus bíl frá árinu 1978. Ég er ekki frá því að hann sé að keppa í bandaríska kappakstrinum á þessari mynd.

Brabham BT46B (3 álit)

Brabham BT46B Hér má sjá “viftubílinn” fræga:
Brabham BT46B, með Alfa Romeo vél í skottinu.

Bíllinn var hannaður eftir hugmynd Gordon Murray. Hann hafði þá sérstöðu að hann var með viftu aftan á bílnum, sem hafði það hlutverk að auka niðurþrýstinginn á brautinni. Var honum ætlað að gera Brabham samkeppnisfært við Lotus-bílana, sem réðu nánast heimsmeistarakeppninni 1978 með öflugri niðurþrýstingstækni.

Kom BT46B fyrst til leiks fyrir sænska kappaksturinn í Anderstorp 1978. Slík snilldaruppfinning var þetta, að loksins voru Lotus bílarnir komnir með verðugan andstæðing.

John Watson og Niki Lauda náðu 2. og 3. sæti á ráslínu, á eftir Mario Andretti á Lotus. Fór keppnin svo að Niki Lauda vann keppnina, en John Watson féll úr leik með bilaða inngjöf.

Reyndist þetta vera eina keppni Brabham BT46B, þar sem útbúnaðurinn var fljótlega bannaður eftir þetta. Sigurinn stóð þó.

Svo mörg voru þau orð um sögu viftubílsins.

Piquet & Salazar @ Hockenheim 1982 (12 álit)

Piquet & Salazar @ Hockenheim 1982 Nelson Piquet að lumbra á Eliseo Salazar eftir að Piquet klessti á Salazar í þýska kappakstrinum 1982.

David Superman Coulthard (2 álit)

David Superman Coulthard Ég man ekki hvað pointið var. Allaveganna er gaman að sjá ökumenn bregða á leik :)
F.v. Montoya, Alonso, Superman og Briatore

4 Heimsmeistarar (12 álit)

4 Heimsmeistarar Þetta eru 4 heimsmeistarar að spjalla um keppnina. Þeir voru allir frábærir ökumenn.

Frá vinstri: Alain Prost, Ayrton Senna, Nigel Mansell og Nelson Piquet
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok