Þetta var sniðugt tæki. Ein öflugasta byssa Þjóðverja í seinna stríðinu 75mm L/71 var sett ofan á “bodíið” af Panzer IV skriðdreka. Gat skotið hvaða skriðdreka bandamanna í tætlur á miklu færi en var á móti mjög illa brynvarið og berskjaldað tæki. Þetta var mjög öflugur skriðdrekabani og var hann framleiddur allt að enda stríðsins.
Þetta er ein frægasta fréttaljósmynd allra tíma. Tekin í Peking árið 1989 þegar stúdentar voru að mótmæla við Torg hins himneska riðar en eins og margir vita enduðu þau mótmæli með blóðbaði. Talið er að yfir 1000 manns hafi látist en það er ekki vitað með vissu enda rannsóknir á atburðinum bannaðar af kínversku ríkisstjórninni.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..