3Guð sagði: “Verði ljós!” Og það varð ljós. 4Guð sá, að ljósið var gott, og Guð greindi ljósið frá myrkrinu. 10Guð kallaði þurrlendið jörð, en safn vatnanna kallaði hann sjó. Og Guð sá, að það var gott. 12Jörðin lét af sér spretta græn grös, jurtir með sæði í, hverja eftir sinni tegund, og aldintré með sæði í sér, hvert eftir sinni tegund. Og Guð sá, að það var gott. 17Og Guð setti þau á festingu himinsins, að þau skyldu lýsa jörðinni 18og ráða degi og nóttu og greina sundur ljós og myrkur....