Neeeeh, reyndar ekki. En þegar hann fer í framkvæmdir á húsinu, eins og þegar hann setti hita í gólfið í anddyrinu, þá var öllu draslinu hent inn til mín. Ég var náttúrulega næst anddyrinu en samt! En hann er voða fínn sko.
Já, auðvitað. En þessi helvítis villa fer bara í taugarnar á mér. Ekkert beint gegn þér endilega. Maður reyndi að óska þér gleðilegs sumars í skólanum í dag.. ertu of mikið celeb fyrir Bergrúnu gömlu?
Heyrðu nú mig. Þetta voru náttúrulega svaka svaka fréttir eins og alltaf en ég verð að setja út á eitt. Choco: Þú veist samt að það er fréttaMAÐUR… ekki fréttaKONA! Menn eru konur! KONUR ERU MENN! Maður þýðir manneskja og maður í fleirtölu er menn sem þýðir þá manneskjur! Ekkert svona sexist rugl! Okei.
Twiggy er átti þetta að vera. Bætt við 19. apríl 2007 - 20:11 Hef greinilega ýtt á vitlausan takka. Ætlaði að bæta við. Jæja. En vildi bara bæta við að mér finnst Nicole Kidman er afskaplega falleg eins og einhver sagði líka hérna fyrir ofan.
Mér finnst Audrey Hepburn hafa verið mjög falleg. En hún var alveg hrikalega grönn. Twiggy var líka voða sæt og þær voru það allar. Fegurð er svo afstæð að ég get ekki valið eina fallegustu konu heims.
Hann er náttúrulega ekkert líkur honum í útliti, en þeir eru álíka illgjarnir. Það er alkunn staðreynd að skólastjórinn í Brekkuskóla tekur helminginn af peningnum sem krakkarnir borga fyrir mötuneytið og notar í snekkju-kaup. Þess vegna er maturinn svona viðbjóðslegur. Og þó, ef skólastjórinn væri aðeins gulari og með lengra og mjórra nef þá væru þeir alveg líkir.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..