KR mætti í gærkvöldi albönsku meisturunum í Vllaznia. KR byrjaði leikinn af krafti, en Albanarnir lögðu alla áherslu á að verjast fyrstu mínúturnar. Leikurinn fór að langmestu fram í vítateig Vllaznia fyrsta kortérið, en Albanarnir uppskáru mark úr sinni fyrstu alvöru sókn, þegar einn leikmaður liðsins, Duro, saumaði sig í gegnum vörn KR og náði góðu skoti neðst niður í vinstra markhornið, óverjandi fyrir Bjarka Guðmundsson, sem lék í marki KR. Eftir þetta komust gestirnir meira inn í...