Í tilefni af árstíma hinna alræmdu jólaprófa finnst mér rétt að birta ljóð sem ég orti á Þjóðarbókhlöðunni við undirbúning fyrir jólapróf þau sem ég þreytti fyrir 2 árum: Neminn skelfur, nálgast próf Nú er vandi á höndum Sjúkur hiti, svitakóf Senn fer allt úr böndum Valda próf og vanlíðan Verst eru íslensk fræði Lítið er ei lagt á mann Logandi brjálæði Kemst ég ei á skýrlegt skrið Skortir allan vilja Bækur sem mér býður við Berst ég við að skilja Sársauka í brjósti ber Berst ég fyrir næði...