Super Mario sunshine Super Mario sunshine er kominn í verslanir. Ef ég ætti að lýsa honum í stuttu myndi ég aðeins þurfa að segja þessi orð að hann væri alger snilld Saga: Sagan er þannig að Mario er að fara í frí á Isle Delfino með Peach og Toadsworth, en fríið verður ekki eins skemmtilegt og allir halda. Þegar þau eru í flugvélinni er auglýsing um hvað er hægt að gera á Isle Delfino, Mario og Toadsworth eru í algerðri hugleiðslu um hvað er að gera á Isle Delfino. En Peach tekur eftir því...