Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

skuggi85
skuggi85 Notandi frá fornöld 39 ára karlmaður
3.796 stig

Britney og Justin að performera saman (0 álit)

í Fræga fólkið fyrir 19 árum, 1 mánuði
Britney og Justin að performera saman. Hægt er að nálgast myndbandið í blogginu mínu. Algjör snilld að sjá þau syngja saman svona ung :D

Leoncie aðdáendur.... (44 álit)

í Tilveran fyrir 19 árum, 1 mánuði
Ekki gleyma því að Leoncie er í “Sjálfstætt fólk” í kvöld. Eitthvað sem enginn sannur aðdáandi má missa af. Hún er víst flúin land svo þetta gæti verið seinasta viðtal við hana sem við sjáum hérna á Íslandi. Hún hefur reyndar verið að tala um að fara að meika það í Bandaríkjunum og er komin með umboðsmann þar. Svo hver veit nema við sjáum hana í framtíðinni sem alþjóðlega stjörnu. Smá upphitun fyrir kvöldið, viðtal við hana á Kiss FM:...

Syndir... (15 álit)

í Tilveran fyrir 19 árum, 1 mánuði
Halló. Ég nenni ekki að lesa gamla korka. Er búið að loka áhugarmálinu?

Logi kominn á Stöð 2... (49 álit)

í Tilveran fyrir 19 árum, 1 mánuði
NEEEEEEEEEIIIIIIIIIIIII! Agghhhh! Hann er ekki nógu hress til þess að vera þarna. Finnst eins og ég sé að horfa á Rúv.

Walkman könnunin... (5 álit)

í Músík almennt fyrir 19 árum, 1 mánuði
The Walkman phones 100 is the first soundtrack of the world’s 100 favourite songs of all time, compiled by Sony Ericsson to coincide with the launch of its new family of Walkman phones. Almost 700,000 music lovers from 66 countries worldwide voted – see if your favourite songs made it into the final 100 below… http://www.walkmanphones100.com/ Global Top Ten Songs 1. We are the champions Queen 2. Toxic Britney Spears 3. Billie Jean Michael Jackson 4. Hotel California The Eagles 5. La Tortura...

VR auglýsinginn... (102 álit)

í Tilveran fyrir 19 árum, 1 mánuði
Mér verður óglatt af þessum auglýsingum. Þeir eru í raun að fullyrða að allur launamunur sé vegna fordóma yfirmanna. T.d. hávaxnir og lágvaxnir. Ýmsar rannsóknir benda til þess að hávaxnir hafi að meðaltali betra sjálfstraust en lágvaxnir. Sjálfstraust hlýtur að endurspeglast í afrekum. Sama má segja um þá sem eru í líkamlegu formi miða við þá sem eru feitir, að meðaltali hærra sjálfstraust. En nei nei auglýsingin setur þetta auðvitað upp eins og vondi yfirmaðurinn mismuni fólki eftir kílóum...

Brokeback Mountain (3 álit)

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 1 mánuði
http://www.imdb.com/title/tt0388795/ http://movies.yahoo.com/feature/brokebackmountain.html Þessi mynd virðist vera að fá frábæra dóma bæði af almenningi og gagnrýnendum. Sumir segja að hér sé á ferðinni “Romeo & Juliet” samkynhneigðra. Allt of fáar rómantískar myndir sem hafa verið gerðar um samkynhneigð ástarsambönd. Orðinn þreyttur á því að myndir um samkynhneigða fjalli alltaf um það sama. Djamm+fíkniefni+kynlíf og smá skvetta af fordómum. Orðið þreytandi. En ég vona allavega að þessi...

Frjálshyggjumenn vilja hækka laun leikskólakennara (34 álit)

í Stjórnmál fyrir 19 árum, 1 mánuði
http://www.frjalshyggja.is/?gluggi=alyktun&id=60 Í ljósi undangenginnar umræðu um leikskólarekstur á Íslandi vill Frjálshyggjufélagið benda á eftirfarandi. Í fyrsta lagi eru laun í einkageiranum að jafnaði hærri en laun í hinum opinbera. Þetta á sérstaklega við um starfsgreinar þar sem skortur er á starfsfólki í aðstæðum þar sem fáir vilja fylla í margar stöður. Eftirspurn eftir starfsfólki þarf að fylgja eftir með hækkandi launum. Að öðrum kosti er nánast öruggt að ekki næst að fylla í...

A Little Trip to Heaven (12 álit)

í Tilveran fyrir 19 árum, 2 mánuðum
http://www.imdb.com/title/tt0420740/ Nú er víst búið að sýna myndina erlendis. Hefur einhver hugmynd hvenær myndin verður sýnd hérlendis?

Ofbeldi Súnní múslima heldur áfram... (4 álit)

í Deiglan fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Fimm kennarar og bílstjóri myrtir fyrir framan skólabörn í Írak Byssumenn, dulbúnir sem lögreglumenn, myrtu fimm kennara og einn bílstjóra fyrir framan skólabörn í skóla suður af Bagdad í dag, samkvæmt upplýsingum frá írösku lögreglunni. Byssumennirnir, sem voru 10, drógu kennarana út úr skólastofum í Muwalha, um 60 kílómetra suður af Bagdad. Kennararnir voru allir sjítar. Mbl.is Virðast vera en þá fúlir yfir því að hafa misst einræðið. Ég bara skil ekki hvernig fólk getur verið svona grimmt...

Fundinn sekur um aðild að hryðjuverkaárásunum á Bandaríkin (11 álit)

í Deiglan fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Mbl.is Spænskur dómstóll fann í dag Sýrlendinginn Imad Eddin Barakat Yarkas sekan um aðild að skipulagningu hryðjuverkaárásanna á Bandaríkin 11. september 2001. Yarkas, sem talinn er vera leiðtogi al-Qaeda hryðjuverkasamtakanna á Spáni, var dæmdur í 27 ára fangelsi. Alls hafa 24 menn verið ákærðir fyrir að tengjast al-Qaeda á Spáni og voru kveðnir um dómar yfir fjórum þeirra í dag. Saksóknarar kröfðust þess að Yarkas yrði dæmdur í 74.377 ára fangelsi fyrir aðildina að hryðjuverkaárásunum eða...

Britney og Kevin heima hjá sér (12 álit)

í Fræga fólkið fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Nú keppast fjölmiðlar í Bandaríkjunum um að ná mynd af barninu hennar Britney Spears. Fyrsta ljósmyndin af barninu er metin upp á 1,5 milljón dollara. Myndirnar voru teknar úr þyrlu sem flýgur reglulega yfir heimili hjónanna í Malibu.

Þunnur og veðrið... (76 álit)

í Tilveran fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Það er kalt úti og hvasst. Hvít, sólarlaus birta svona eins og er algengast á Íslandi. Svo er ég þunnur. Ég er svangur en ég tel það ekki vera þess virði að fara fram og útbúa máltíð. Maginn hættir kannski að kvarta en sálin gerir það ekki. Vonandi verður morgundagurinn betri. Ég vil ekki vera frjáls eins og fuglinn. Ég vil vera frjáls eins og björninn sem fær að sofa yfir veturinn. Ég vil sofna og vakna á betri tímum. Bara ef lífið væri svona einfalt.

Tónlistarhúsið - 12 milljarðar. (16 álit)

í Deiglan fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Ekkert hægt að setja út á húsið sjálft sem er alveg glæsilegt. En hvernig lýst ykkur að það eigi að eyða 12 milljörðum í þetta menningarfyrirbæri? Hvernig lýst ykkur á að laun ykkar fari í að borga fyrir þetta hús? Miða við mannsafla á vinnumarkaðnum þá ætti skiptingin að vera um 70-80 þúsund krónur að meðaltali á hverja vinnandi manneskju. Þetta er stofnkostnaðurinn. Svo er það um 4000 kr árlega á árunum 2009-2044 vegna rekstrarkostnaðar. Hversu oft ætli meðalmanneskjan eigi eftir að fara í...

Hræsnin í Hamas samtökunum.... (27 álit)

í Deiglan fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Ísraelsher lokaði landamærum Gasasvæðisins og Vesturbakkans í morgun og skaut flugskeytum á byggingar á Gasasvæðinu þar sem talið er að Hamassamtökin geymi og framleiði vopn. Var þetta gert í kjölfar þess að Hamasliðar skutu eldflaugum á ísraelska bæi við landamæri Gasasvæðisins í gærkvöldi. Og svo… Herskáu samtökin Lýðræðissinnar um frelsun Palestínu lýstu því yfir í dag að vopnahléi á milli Palestínumanna og Ísraelsmanna væri lokið. Yfirlýsingin kemur í kjölfar loftárásar Ísraelshers í...

Ökumaður með 10 grömm af plöntu... (3 álit)

í Deiglan fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Mbl.is Lögreglan í Borgarnesi lagði í fyrrakvöld hald á 10 grömm af hassi sem fundust á ökumanni bíls sem var á leið norður í land á föstudagskvöld. Maðurinn er um þrítugt. Honum var sleppt að lokinni yfirheyrslu. Já alltaf jafn spennandi þessar fréttir. Það er næstum eins og þeir geri bara copy/paste reglulega. Allar þessar hass fréttir eru jafn leiðinlegar og óspennandi. Hversum er ekki sama að einhver var með 10 grömm af plöntu í bílnum sínum? Þegar maður sér svona fréttir áttar maður sig...

Leitin... (15 álit)

í Tilveran fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Þetta er nú bara eins og Djúpa Laugin bara ferðast um landið. Minnir mann ekkert á amerísku Bachelor þættina. Held að það verði ekkert mikið úr þessu. Er mikið spenntari fyrir Ástarfleyina eða hvað þessir þættir heita á Sirkus. Hljómar mikið stærra og flottara.

PARKÓDÍN!!! (232 álit)

í Tilveran fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Helvítis fasistalög. Frá með næstu viku þarf að fá lyfseðil fyrir þessum verkjalyfjum. Flestir kaupa þessi lyf t.d. við að fá flensu eða höfuðverk, hver nennir að fara til læknis með tilheyrandi kostnaði í hvert skipti sem slíkt kemur fyrir? Já já sumir hafa orðið háðir þessum lyfjum. Margir þeirra hafa líka keypt þau með þeim tilgangi að misnota þau. ÞEIRRA VANDAMÁL! Ég veit að þetta eru ávanabindandi lyf og fer hóflega með þau. Þetta eru þau verkjalyf sem virka best í að slá á einkennin...

Vinátta, framhjáhald eða samsæri? (15 álit)

í Fræga fólkið fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Vinátta, framhjáhald eða samsæri?

Nokia.... (9 álit)

í Hugi fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Ég á Nokia 6100. Málið er að það stendur alltaf OgVodafone á skjánum. Finnst það vera pirrandi af því það eyðileggur veggfóðrið, fer yfir besta hlutann. Ég veit að ég er viðskiptavinur hjá OgVodafone og því gagnast þessi texti mér ekki neitt. Hvernig tekur maður hann burt? Er búinn að týna handbókinni þannig að ekki segja mér að kíkja í hana :P

Var að fara að taka bensín og... (41 álit)

í Tilveran fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Á bensínstöðinni keyri ég í átt að dælu. Er alveg að koma að henni þegar allt í einu kemur bíll á miklum hraða og svínar á mig með því að gefa í botn að dælunni. Einhver sem að hefur verið að koma hinum megin og séð mig, ákveðið að gefa í til þess að ná dælunni á undan mér. Arggghhh hvað þetta er algengt á Íslandi svona þvílíkur dónaskapur. Maðurinn var alveg þvílíkt lengi, var örugglega á dropanum og að fylla. Loksins klárar hann og ég stíg út. Ég sver það NÁKVÆMLEGA Á SÖMU SEKÚNDU kemur...

Pizza... Kaloríur (12 álit)

í Hugi fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Var að kaupa Fyrirtaks Ömmubakstur - Eldbökuð Pizza - Pepperoni - 360 g Svo stendur að það séu 1203 kaloríur í 100 g. Það eru 4330 í pizzunni. Þetta getur ekki verið rétt er það nokkuð?

Norður-Kórea setur skilyrði fyrir því að hverfa frá kjarnorkuáætlun sinni (18 álit)

í Deiglan fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Þetta er alveg fáránlegt að Bandaríkin og önnur vestræn lönd skuli elta einræðisherrann með gjafir af því hann sé kominn með kjarnorkuvopn. Hvaða skilaboð sendir slíkt? Nú er ekki samið við hryðjuverkamenn af því slíkt hvetur aðra til þess að gera það sama. Þetta er nákvæmlega eins með þjóðarleiðtoga. Þegar maður mútar einræðusherra til þess að falla frá kjarnorkuáætlun sinni, þá hvetur það aðra til þess að gera það sama. Þetta er eins og að gefa svöngum ketti, ef þú gerir það einu sinni þá...

Sandra Bullock (4 álit)

í Fræga fólkið fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Sandra Bullock
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok