Spurðu þig frekar, “Hef ég eitthvað betra að gera?” Ef svarið er nei, haltu þá áfram að spila. Þú ert að vanmeta hvað annað fólk eyðir miklum tíma í asnalega hluti, sama hversu mikið það lítur út fyrir annað.
Líttu á nafnið á þessum kork, er ekki verið að gefa í skyn að þessi könnun sé heilagur sannleikur? Afhverju ætti að vera líklegra að útkoman verði sú sama hjá þessum 30 einstaklingum? Við getum ekki sagt fyrir um þetta af því að hver og einn einstaklingur er ólíkur.
Getum við þá gert ráð fyrir því að skoðanir hvers manns séu í beinu samræmi við þjóðfélagsstöðu hans og/eða hvaða hópi fólks hann telst til í samfélaginu? Erum við semsagt ófær um að hafa sjálfstæða skoðun, óháð hópnum? Mér finnst persónulega óþægilegt þegar það er farið með útkomu kannana eins og þær séu heilagur sannleikur sem gilda fyrir alla þjóðina.
En það er reglulega fullyrt útfrá skoðanakönnunum.. Það er nóg að kíkja í næsta fréttablað eða moggann til að sjá eitt stykki svoleiðis fullyrðingu á forsíðunni.
þannig að ef ég færi út á götu og spyrði 1750 manns hvaða gosdrykkur því findist bestur, og meirihlutinn myndi segja kók, gæti ég þá fullyrt að kók sé vinsælasti gosdrykkur landsins?
Ég les ekki þessar bækur, en þú hlýtur að geta séð þetta líka? Fleiri og fleiri falla undir flokkinn Twilight áhugamenn. Við verðum að bregðast við og koma þeim öllum í öruggt umhverfi áður en það verður of seint.
Fáum ekki evruna ef við göngum í esb. Allavega ekki strax þar sem íslenskt efnahagslíf er rjúkandi rústir og við uppfyllum ekki skilyrði fyrir upptöku hennar. Eina góða við esb er byggðarstefna.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..