Nýjasta mynd leikstjórans Paul Thomas Anderson (Boogie Nights, Magnolia), Punch-Drunk Love, er algjört meistaraverk. Það sem kom mér mikið á óvart er leikframmistaða Adam Sandler (Waterboy, Little Nicky, Happy Gilmore, The Weeding Singer). Fyrri myndir hans hafa ekki verið upp á marga fiska og vinnur hann hér sér inn þvílíkan leiksigur. Myndin fjallar um Barry Egan (Adam Sandler), hálfgeðveikan fyrirtækiseiganda. Hann ólst upp með sjö ráðríkum og stríðnismiklum systrum og veitti það honum...