Sá svona hagström svartan niðrí gömlu tónabúð fyrir einhverjum mánuðum… spurning hvort þetta sé sá… langaði gríðarlega í hann… vel smíðuð hljóðfæri og hann var á fínum prís…
Flottur… man eftir honum niðrí Rín… Þetta var einhver svona special útfærsla fyrir Tommy Hilfiger risann og minnir að þetta hafi verið eitthvað svona give away upphaflega… SG-X var partur af svona All American seríu frá gibson þar sem þeir tóku Les Paul, Melody maker og SG lookið og settu í svona low budget útfærslu… einfalt finish, ekkert extra skraut og þessháttar… bara einfalt look og functionality… Er hann ekki með Split coil ef ég man rétt??? Man að SG-X komu í svaka plebbalegum litum...
Hehe,,, já,,, gott ef ekki… maður á allt of mikið af mögnurum en langar alltaf í fleiri en tími ekki að selja aðra í staðinn… Verst að þetta eru fyrirferðamiklar græjur!!!
Er þetta Gibson eða kramer??? :) En ég held að það sé til áhugamál hérna á huga fyrir leikjatölvur ef þú ert ekki þegar búinn að setja auglýsingu þar… ekki beint hljóðfæratengt… Svona svipað eins og að fara auglýsa dótagítar með blikkandi ljósum og spiladós úr Toys´r´us hérna… ;)
jamm, þetta er nú reyndar gítarmagnari en það er gríðarlegur botn í þessu… kom mér á óvart en samt ekki of mikill að hann taki burt eða yfirgnæfi toppinn… gríðarsánd í þessu…
Þeir eru held ég bara með bassamagnara núna… voru með einhverja gítarlampamagnara fyrir einhverjum árum síðan… hétu rocket eitthvað… nenni ekki að google-a :)
Jamm, hann er með meira output en t.d. Big muff að mínu mati/í mínu rig-i… allaveganna miðað við þá big muffa sem ég hef notað (2 usa re-issue og einn rússneskur)… þetta er samt spes fuzz/octave græja… mjög brútal… Þetta video fékk mig til þess að tékka þessum pedal… þegar maður var unglingur… http://www.youtube.com/watch?v=rE2tQ1Fjg24 Var víst fender blender að blasta í þessu performance-i skv. því sem maður las á sínum tíma…
Þetta er endurspeglun, sýnist vera horn á húsveggi… sérð það á búknum sjálfum í stærra formi… Bætt við 3. júlí 2009 - 01:34 Eða húsveggur og niðurfall fyrir miðju… erfitt að átta sig á því… enda endurspeglun ;)
Eins og aðrir hafa nefnt… fara niðrí hljóðfærahús og prófa bæði strat og tele… mismunandi feel á þeim og karakterinn í sándinu öðruvísi… Strat er allur mýkri hvað varðar hönnun á búknum… straumlínulagaður á móti tele sem er meiri planki… fjölbreyttara sánd líka í strat þar sem hann er með 3 pickup-a og 5 mismunandi stillingar á þeim, tele með 2 pickup-a og 3 stillingar… allt meira einfaldara… en mér finnst tele-inn “bíta” meira en stratinn og er það vegna þess hvernig brúinn er hönnuð og...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..