Okei, ég veit að sumir eru orðnir þreyttir á þessum greinum sn mig langar líka…. Leiðarljós er uppáhaldið mitt og ég hef horft á það mun lengur en góðu hófi gegnir og flest eftirminnilegu atvikin eru dálítið gömul. - Þegar fólk hefur dáið óvænt (og endanlega) eins og Lujack, Mave og Maureen. - Þegar Mindy og Kurt giftu sig (fyrir mörgum, mörgum árum) var haldin mikil veisla á einhverju herrasetri. Man alltaf sérstaklega eftir að Reva kom ríðandi á hestbaki (þessi mynd hefur setið greypt í...