Hæhæ. Ég er í MIKLUM vandræðum með stærðfræðina. Núna á ég t.d. að finna helminginn af 7/9 sem ég bara veit ekki hvernig er hægt!. Svo ég spyr bara hér. Hvernig finnur maður það út?:S En annars þá er ég alltaf að fá 5,5 í stærðfræði en 8-9 í öllu hinu og þessi bévítans stærðfræði er að gera mig brjálaða!. Hvað sem ég reyni á mig gengur ekkert. Kann einhver ráð við þessu?