FH er áfram í hópi efstu liða eftir sigur á Val í gær. Daði Lárusson, markvörður FH, þurfti að taka á honum stóra sínum strax á fyrstu mínútunni þegar Ármann Björnsson fékk mjög gott færi. Heimamenn voru líklegri í fyrri hálfleik, Matthías Guðmundsson var hættulegur þegar hann tók rispur upp hægri kantinn. Valsmenn fengu nokkur ágæt færi á þeim kafla en það besta átti þó fyrirliðinn sjálfur, Kristinn Lárusson. Hörður Magnússon var lítið áberandi sem framherji liðsins. Á 41. mínútu stakk Jón...