Lokahóf KSÍ fór fram í gær. Gunnlaugur Jónsson, fyrirliði ÍA, var valinn bestur í karlaflokki og kemur það fáum á óvart. Markamaskínan Olga Færseth, KR, varð fyrir valinu í kvennaflokki. Grétar Rafn Steinsson, ÍA, og Dóra Stefánsdóttir, Val, voru valin efnilegustu leikmennirnir. Háttvísiverðlaunin komu í hlut Breiðabliks í kvennaflokki og Fylkis í karlaflokki auk þess sem Margrét Ákadóttir, Breiðabliki, var valin prúðasti leikmaður efstu deildar kvenna og Róbert Magnússon, FH, í karlaflokki....