Fram varð Íslandsmeistari í knattspyrnu innanhúss um seinustu helgi, þegar KR-ingar voru lagðir í úrslitaleik með fjórum mörkum gegn engu. Leikið var í Smáranum í Kópavogi. Fram lagði Þrótt 4-0 í 8.liða úrslitum, KR vann Keflavík naumlega 4-3, Völsungur vann Víking 5-4 og íslandsmeistararnir frá því í fyrra, Þór Akureyri, sigraði Breiðablik 3-2. Í Undanúrslitum vann Fram síðan Þór 2-1 og KR sló Völsung út með 3-2 sigri. Markvörðurinn Gunnar Sigurðsson, Ásmundur Arnarsson og Ómar Hákonarsson...