Það er einfaldlega ekki málið. Málið og aðal hættan við þennan sjúkdóm er ef að hún stökkbreitist og fer að breiðast á milli manna. Fuglaflensan er allsekki svo hættuleg akkurat núna en getur orðið það ef hún stökkbreitist.
“Mannsu ekki í fyrra þegar allir í Asíu gengu með svona grímu til þess að anda í gegn um því að allir voru að segja sú veira væri að fara að drepa alla. Hún var í fréttum alla daga og allt í einu hvarf hún bara.” SARS var ekki inflúensu veira sem barst með lofti og því auðveldara að hindra útbreiðslu hennar.
Nú ertu eitthvað að ruglast. 5 fuglaflensur á þessum örfáu árum sem búin eru af þessari öld? Þú meinar síðustu öld en ef ég man rétt þá byrjaði spænska veikin 1918 einmitt í fuglum svipað og fuglaflensan núna og ekki smitaðist hún milli manna með lofti eins og þessi flensa gæti hugsanlega gert.
“Svo er einfaldlega bara að loka landinu..alveg…harðlæsa enginn inn enginn út….” Já það ætti að duga þar sem að fuglar fara eftir reglum ekki satt? Þú gleymir því smáatriði að fuglar munu breiða sjúkdóminn með sér líka svo það þarf aðeins meira en að hindra bara samgöngur milli landa.
það var sars. Sú veira berst ekki með loftinu eins og inflúensur heldur aðeins með munnvatni og snertingu að mig minnir sem þýðir að það var auðvelt að koma í veg fyrir heimsfaraldur en fuglaflensan er inflúensuveira eins og kvef og þar sem fuglar bera hana líka þá er nánast ómögulegt að hindra hana í að dreyfa sér milli landa.
Gæti verið að ég hafi óvart rekist eitthvað í það. Er enginn séns á að laga það ef ég hef rekist í það? Eru ram stickin þá ónýt líka eða bara ram raufarnar? en ég var að skoða móðurborðið áðan og sá að inní tenginu sem maður tengir við power supplyið eru svona brúnir blettir. Gæti það þýtt power supplyið hafi grillað móðurborðið?
Ekki það slæm? Síðast þegar ég vissi var dánartíðni venjulegra inflúensa ekki alveg 50-70%. Þú mátt ekki gleyma því að milljónir ef ekki milljarðar manna fá venjulegar inflúensur árlega og ef að fuglaflensan verður þannig þá munu milljónsinnum fleiri deyja af henni en af venjulegum inflúensum.
PETA myndbönd sýna ekki hefðbundin sláturhús heldur aðeins þau verstu. Svo að þetta myndband segir voða lítið um það hvernig köttum er almennt slátrað.
Lastu greinina? “Af hverju? Því við kunnum að svindla. Mennirnir dópa til dæmis.” Þetta stóð í greininni og ég var að benda honum á að þetta er ekki eitthvað sem einungis mennirnir gera vegna úrkynjunar. Þetta kom því sem þú sagðir nákvæmlega ekkert við enda var þessu ekki beint til þín.
Þetta þýðir einfaldlega það að önnur dýr neita vímuefna. Éta m.a. sveppi, kaktusa og plöntur til að komast í vímu. Það er ekki bara úrkynjun mansins að sækja í þessu efni. Þetta hefur ekkert með þróunarkenninguna að gera.
Hvað ertu að bulla með dópið? Það kemur málinu ekkert við. Það var svar til greinahöfundar. Þú tróðst því svo aftur með þegar þú copy peistaðir það sem ég sagði.
“Samt er til önnur kenning um hvernig alheimurinn varð til. Hvernig geta verið til tvær mismunandi kenningar um eitthvað sama hlutinn.” Hvaða aðra kenningu ertu að tala um? Eftir því sem ég best veit er miklahvells kenningin sú eina sem nútíma vísindi samþykkja og notast við. Bæði skammtafræðin og venjuleg eðlisfræði geta útskýrt hvernig þetta gerðist. Uppgötvun Hubbles bendir líka til þess að þessi kenning sé rétt. “En þú verður þá fyrirgefa ef þú hefur aðrar ástæður en að reyna vera...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..