Ég vr að horfa á jólaþáttinn áðan og ég bara get ekki beðið til jóla!! Það var allt svo jólalegt, geðveikt flott jólatré og skreytingar, síðan bara jólaskapið hjá þeim öllum, söngurinn og fjölskyldustundirnar:) Samt geðveikt sorglegt með Feliciu, fór næstum að gráta í síðasta atriðinu á undan því þegar leikararnir og allt staffið kom og Eric sagði fyrst: ,,From our family in The Bold And The Beautiful to yours,“ og allir sögðu,,HAPPY HOLIDAYS!!” Æ, manni langar bara til að jólin komi núna...