já, þakka þér fyrir. Mínar kisur eru ekki hreinræktaðar og vegna snobbs þá virðast hreinræktaðir alltaf seljast. Ég var ekkert að tala um hreinræktaða ketti, enda sérðu að þessir kettir hér að ofan eru ekki hreinræktaðir. Vertu ekki með svona bull.
er þér þá alveg sama um það að kettlingarnir munu að öllum líkindum ekki fá heimili og enda á götunni eða dauðir. Finnst þér það bara allt í lagi? Það er svona fólk eins og þú sem er vandamálið…
ég samþykkti þetta þó svo að ég er mjög ósátt með þetta. ég skil ekki að fólk sé að “leyfa” læðunum sínum að eignast kettlinga “einu sinni” eða kannski bara eins oft og hún vill. það er bara því miður offramboð á kettlingum allavega á höfuðborgarsvæðinu og alltaf stærri hluti endar í kassa úti í bæ eða eru drepnir. Það er algjör mýta að kisur þurfi að eignast kettlinga einu sinni áður en þær eru geldar annars verði þær geðveikar, spurðu hvaða dýralækni sem er! svo finnst ykkur það virkilega...
finnst þér svona geðveikt óraunhæft að við getum breytt því þannig að refsing passi glæp hérna á Íslandi, ég tel ekki. Við þurfum hinsvegar að sýna að við viljum það, ekki bara röfla um það úti í horni.
ég má koma með innihaldslaus komment ef ég vil. Hvað veit ég nema frændi þinn eða vinurinn þinn hafi verið nýbúinn að kaupa þetta og þú stolið öllum pakkanum? Ég skil ekki af hverju fólk kaupir sér hluti bara til að selja þá ónotaða eða nánast ónotaða, finnst það alltaf hálf fishy.
ég veit að þetta myndi bögga fæsta í minni fjölskyldu. T.d. afi gæti haft gott af þessu enda farinn að heyra illa. Þetta myndi nefnilega ekki bara nýtast heyrnarlausum, heldur líka þeim sem eru að fá aldurstengdar heyrnartruflanir. En EF það væri hægt að hafa textann á textavarpinu nógu stóran (sem hann er ekki) og góðan (sem hann er ekki) þá væri þetta ekki svona mikið mál. Svo þyrfti þá líka að styrkja útsendingu rúv. Léleg og gömul loftnet ná stundum ekki textavarpinu. T.d. mitt.
hvað veist þú um það að þetta böggar meirihlutann? Hefurðu gert könnun um þetta? Og hvernig veistu að þetta böggar þig? Ert þú alltaf að horfa á íslenskt textað efni :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..