Hvað er það sem allir sjá svona við þetta lag? Þetta á að heita eitt af frægari og betri lögum Aerosmith, en mér finnst það alls ekkert spennandi. Alltof poppað og tilgerðarlegt. Það hlýtur einhver annar að vera með skoðun á þessu?
Er fólk eitthvað búið vera að kynna sér þetta? Ég er búinn að vera að hlusta á þetta núna og viti menn, það er hellingur af góðum lögum á þessu. Er að hlusta á America einmitt núna, klikkar ekki. Allavega, eru einhverjir aðrir með skoðun á þessu?
Hræðilega er ég orðinn þreyttur á því að alltaf þegar maður er að skoða myndir og það kemur ein photoshop-uð, þá er ALLTAF a.m.k. einn sem segir “lélegt” eða “illa photoshoppað” eða eitthvað í þeim dúr. Getur þetta fólk ekki vinsamlegast bara haldið sér saman þegar kemur að þessu máli og hlegið að myndinni eins og á að gera. Ekki láta svona smáatriði fara í taugarnar á sér og eyðileggja þar af leiðandi húmorinn í myndinni fyrir sjálfu sér og öðrum.
Hvernig er með það? Það virðast aldrei vera haldnir neinir slíkir tónleikar. Húsið er eini staðurinn sem er að halda einhverja tónleika að viti og það eru bara eintómir metaltónleikar. Er ekki kominn tími til að eitthvað breytist í þessu máli?
Jaco Pastorius fæddist í Ft. Lauderdale þann 1. des 1951. Hann var skírður John Francis Anthony Pastorius III en pabbi hans tók upp þann sið að kalla hann Jocko eftir hafnaboltaleikmanninum Jocko Conlan. Hann hélt því nafni svo til dauðadags, þótt hann hafi bersýnilega breytt því örlítið. Jaco var alltaf óvenju hæfileikaríkur sem barn og varð mjög hæfur í flestu sem hann tók sér fyrir hendur. Hann var líka oft talinn mjög góður í flestum íþróttum og hafði sérstaklega gaman að...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..