Takk fyrir kommentin! Það er að vísu frekar langt síðan ég samdi þetta og þá var ég í einhverri tilraunastarfsemi þar sem ég hugsaði bara um stuðlana, höfuðstafi og atkvæðafjölda. Rími ákvað ég að sleppa vegna þess að það er erfiðara, amk að mínu mati, að láta svona stuttar línur ríma þannig að hnökralaust verði. Ég sé það þó núna að ég hefði alveg mátt taka bragarliði betur inní til að hrynjandin yrði betri en hvað um það þá er ég nokkuð sáttur :)