Þetta er svo tilgangslaus aulaskapur hjá þér Tra, að brjóta lög og stela til þess að græða 10 stig á huga?! Þessi stig hafa enga alvöru merkingu og þýða ekki neitt. Þú græðir ekkert á stigunum. Kannski ertu að þessu af öðrum ástæðum en það er engin ástæða sem réttlætir svona framkomu. Þú ert að eyðileggja fyrir öllum, bæði þér og okkur hinum, með þessu. Þú ættir að sjá sóma þinn í því að biðjast afsökunar því annars er þér ekki við bjargandi.