Þú siglt hefur í tilverunnar tjörnum í tuttugu og eitt ár vinur minn og byrði þína þolir báturinn gegn brotsjó lífsins heldur uppi vörnum Við finna munum leið á vegi förnum um framtíð alla fyrir vinskapinn Ég veit að alla tíð mun vegur þinn verða bjartur og stráður himnastjörnum Misstu aldrei móðinn hvað sem gengur á mundu það í öllu lífsins harki hengdu ekki hugann í marklaus mál Í vægðarleysi veraldar þú munt sjá að vinir skipta mestu máli Bjarki Í dag, vinur, við drekkum þína skál