Mínar eru Dumbledore (snökkt), Snape, Hagrid, Lockhart, Filch (veit ekki af hverju), Frú Weasley, Luna (!!!) og Neville :) (og fleiri sem ég man ekki eftir akkúrat núna)
Já, einmitt… það eru aðeins of fáir. Annars var ég að velta fyrir mér hvort það kæmi einhversstaðar fram hversu margir galdramennirnir eru miðað við muggana. Þeir hljóta að vera frekar margir fyrst þeir lifa bara þarna í sínum eigin heimi og þurfa varla að hafa nein samskipti við muggana. Man ekki hvort það hefur komið einhversstaðar fram :S
1. Það er náttúrulega ekki hægt að trúa þessu öllu… dæmisögur og vesen. Annars hef ég ekki lesið alla Biblíuna, reyndi einhvern tíma, en gafst upp. Kann samt vel við ýmsa hluti þarna, Gullnu regluna og allt þetta um fyrirgefningu og mannkærleika :) 2. Já, ég fermdist. Þó ég sjái ekki eftir því (eins og sumir hérna virðast gera) þá er ég samt á því að fermingaraldurinn ætti að vera hærri… og mér verður ómótt af þessum geðveikislegu fermingargjöfum sem sum börn fá og öllu umstanginu í kringum...
Þau nota náttúrulega ekki öll atriðin sem leikararnir spinna… man að í einum þætti sem ég sá segir einn þeirra “it just occurred to me that we're never gonna be able to use that” eða eitthvað þannig (það var reyndar notað, bara sett *peep* yfir e-ð dónalegt sem hann sagði). Sem fékk mig til að halda að þeir notuðu kannski bara helminginn eða minna af því sem er tekið upp.
Það passar. Rowling sagði þetta einhversstaðar, en svo las ég viðtal þar sem hún viðurkenndi að það stæðist ekki miðað við t.d. fjölda nemenda sem hún gefur upp í árgangi Harry í Gryffingor (sem eru bara 10 eða eitthvð). Málið er bara að hún (skv. téðu viðtali) sér fyrir sér sjálf að skólinn sé með um 1000 nemendur, en þeir geta eighinlega ekki verið fleiri en 300 ef maður gefur sér að álíka margir séu á hverri vist. Þetta voru bara hennar mistök, sem maður á að reyna að líta framhjá, enginn...
Ég held að hann/hún sé að tala um að nafnið er vitlaust skrifað á myndinni sem fylgir greininni. Þar stendur Kolsett Rulla. Þetta er örugglega ekki gagnrýni á nafnið þitt ;)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..