Ég bara verð að deila þessari uppskrift með ykkur, ofsalega einfalt og svakalega gott……. OSTAKAKA Botn: 300 gr hafrakex mulið 1msk sykur 5 msk smjör brætt 50 gr síríus suðusúkkulaði brætt Blandið öllu hráefninu vel saman , þrýstið deginu í kringlótt form, kælið. Fylling: 600 gr rjómaostur 150 gr sykur vanilludropar 3 eggjarauður 9 blöð matalím ¾ líter rjómi (3pelar) Rjómaosturinn og sykurinn er brætt við vægan hita, passa vel að það ofhitni ekki. Eggjarauðunum og vanilludropunum er bætt...