Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Úrslit 2003

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 9 mánuðum
þeir gætu farið í stjórn með samfylkingunni og haft 1. manns meirihluta sem er rosalega tæpt og ekki víst að myndi halda.

Re:

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Borgarnes ræðan var ekkert nema persónuárás á Davíð sjálfan sem forseta alþingis, afhverju kom ekki framsóknarmaður í stól borgarstjóra fyrst að Ingibjörg fór. Heldur þú að samfylkingin hefði fengið svona mörg atkvæði hefði það ekki verið fyrir Ingibjörgu þótt svo að það hafi ekki dugað til, hver vil fá Össur sem forsetisráðherra anyways? ekki samfylkingarfólkið það vildi fá Ingibjörgu..

Re: Úrslit 2003

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Sigur framsóknar felst í því að þeir geta gert það sem þeir vilja þ.e þeir standa vel við samningaborðið hjá sjálfstæðis mönnum og samfylkingar mönnum, nú er bara að bíða og sjá hvað þeir velja og afhverju, annars eru frjálslyndir líka sigurvegarar í kosningunum. kv Chaves

Re: Úrslit 2003

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Hvað unnu samfylkingar menn annað en betri stöðu sem stjórnarandstöðu flokkur? Ingibjörg ekki forsetisráðherra, Ingibjörg ekki á þing og ríkisstjórnin ekki fallin. þetta voru markmiðin hjá samfylkingunni!!

Re: jafnaðarmenn í kosningum '03

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Vg eru nauðsynlegt afl í stjórnmálum hér á landi segi ég sem sjálfstæðismaður, þeir setja allt í perspektív fyrir mig sem hægri manni.. kv Chaves

Re: Eru 51,4% nóg?

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 9 mánuðum
5 sæta meirihluti finnst mér ágætur grundvöllur til að halda ríkisstjórnini. Framsókn hefur völdin núna og eru þeir hinir raunverulegu sigurvegarar.. kv Chaves

Re: Veljum nýja og betri ríkisstjórn á morgun!

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Hún Fullyrti!! að hún ætlaði ekki í landsmálin , hvað er það annað en loforð?

Re: Veljum nýja og betri ríkisstjórn á morgun!

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Stjórnin heldur velli samkvæmt könnunum í dag, nema kannski hjá samfy úbs ég meina fréttarblaðinu. Efnhagsástandið í landinu hefur gert þér kleypt að eiga sjónvarp inná herberginu þínu, þakkaðu bara fyrir það ;c)

Re:

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 9 mánuðum
hvað varstu gamall þegar Davíð var borgarstjóri leyfist mér að spurja?

Re:

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 9 mánuðum
borgin lítur miklu betur út???!!!! er það svarið!!!? ROFL

Re: Veljum nýja og betri ríkisstjórn á morgun!

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Snild FiXer4!!

Re: Veljum nýja og betri ríkisstjórn á morgun!

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 9 mánuðum
þú varst sammála deathguard áðan um að hér væri banana lýðveldi Það er nefnilega langt frá sannleikanum :).

Re: Veljum nýja og betri ríkisstjórn á morgun!

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Ef sjálfstæðisflokkurinn lofar 27 miljarða skattalækkunum þá er grundvöllur fyrir þeim, þeir hafa ekki fokkað upp efnahaginum hingað til og ekki ástæða til að þeir geri vísvitandi á næsta kjörtímabili, og ég trysti orðum þeirra betur enn öðrum.. varðandi kommúnisma þá er hugmyndafræðin mjög falleg en hún gengur bara ekki upp.

Re: Veljum nýja og betri ríkisstjórn á morgun!

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Ef það er í lagi að kalla stjórnarfarið bananalýðveldi þá hlítur að vera í lagi að kalla samfylkinguna kommúnista ekki satt? þar sem flokkurinn er vinstra megin við miðju ekki satt?

Re: Veljum nýja og betri ríkisstjórn á morgun!

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Höfum við það betra efnahagslega núna en fyrir 12 árum…? JÁ!! Ef þetta er banana lýðveldi núna þá verður það apa lýðveldi ef samfylkingin kemst í stjórn.. Vinstri stjórn virkar ekki!! það hefur verið reynt og það virkaði ekki..

Re: Veljum nýja og betri ríkisstjórn á morgun!

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Ég hitti gamlan kunningja minn áðan og við fórum að tala um hvað við ættluðum að kjósa, hann er ekki mikill spekúlant á alla þessa pólitík en hann ætlar samt að kjósa sjálfstæðisflokkinn einfaldlega vegna þess að honum líkar vel við ástandið í dag og vil enga breytingu. kv Chaves

Re: Fáðu sem mest/minnst út úr þínu atkvæði

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Hver segir að framsókn og samfylkingin gætu ekki myndað stjórn saman? Það er ólíklegt en samt sem áður lokaði Halldór Á. ekki á það, evrópu stefna framsóknar manna og samfylkingar samrýnast nokkuð vel á meðan sjálfstæðisflokkurinn vill ekkert vita af henni.. kv Chaves

Re: Veljum nýja og betri ríkisstjórn á morgun!

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Er elliheimilið og sambýlið í Reykjavík?

Re: Myndform enn og aftur

í Kvikmyndir fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Alveg sammála, mér finnst nánast ekkert point vera með því að gefa út Dvd myndir í steríó og 4:3. Myndgæðin eru betri o.k en ég er búinn að versla mér græjur fyrir mörg hundruð þúsund til þess að geta nýtt mér það sem dvd býður uppá, Myndform sukkar en þetta eru sem betur fer bara nokkrar myndir eins og er… kv Chaves

Re: Var Tolkien kynþáttahatari?

í Tolkien fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Hann kallaði samt svertinfjana frá Harad Svertings, eftir íslensku máli sennilega :) kv CHves

Re: Davíð laug!

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Hvernig líkar ykkur við Jón Ólafsson, Baugsmenn og fréttarblaðið (ef baugur á það)? Mér finnst umræðan um þá svona dags daglega oft snúast um að þetta séu krimmar að einhverju leiti og að enginn treystir þeim. 3.2 miljarðar svikið undan skatti, dópsali í eina tíð hef ég heyrt um Jón Ólafs frá manni sem þekkti hann á yngri árum. og Baugsmenn, Hagkaup ,Bónus, Bt, Fréttarblaðið, það eitt og sér segir mikið um að þeir væru í aðstöðu til að hægræða verði á matvöru og pólítík ofl. bara pæling kv Chaves

Re: ÉG HEF SVÖR VIÐ ÖLLU HÉR!!!!!

í Heimspeki fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Enn hugsið um þetta, ef það sé satt að geimurinn sé að þenjast út “stækka” þá hlítur hann að enda einhvernstaðar, ekki satt? svo að hann er ekki endalaus. Enda sannaði heimspekingurinn Douglas Adams það með The Restaurant at the End of the Universe..

Re: "Muzik 88.5" að hætta!!

í Tilveran fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Það var heldur ekki bara rapp og hip hop á muzik, heldur var líka inn á milli trip hop, house, trance, fönk, djass, drum & bass, big beat, break beat, osfr.. Hvar á ég að hlusta á svona tónlist í dag :( snökt er farinn að skæla Chaves

Re: Mælið með DVD spilara!

í Kvikmyndir fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Já og eða Toshiba 220 týpuna fyrir neðan Whistlers, fær fullt hús stiha líka í what hifi, kostar 35.. kv Chaves

Re: Orange County

í Kvikmyndir fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Mér fannst þetta bara fínasta mynd, bjóst elli við miklu enn hún kom mér á óvart kv Chaves
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok